Mikið álag af völdum erfiðra viðskiptavina, nemenda eða sjúklinga eru algengustu áhættuþættir starfsfólks á vinnumarkaði samkvæmt yfirgripsmikilli nýrri könnun Vinnuverndarstofu Evrópu í 36 löndum, þar á meðal á Íslandi.
Í henni kemur m.a. fram að algengustu áhættuþættirnir séu sálfélagsleg- og stoðkerfisvandamál en einkum var sjónum beint að sálfélagslegum áhættum, þ.e. vinnutengdri streitu, ofbeldi og áreitni.
Niðurstöðurnar endurspegla stöðugan vöxt þjónustugeirans. Þannig virðast t.d. algengustu áhættuþættir starfsmanna vera álag sem fylgir því að eiga við erfiða viðskiptavini, nemendur og sjúklinga. Í löndum ESB svörðuðu 58% fyrirtækja því á þann veg (á Íslandi 57%) og á eftir koma þreytandi eða sársaukafullar líkamsstöður (56%) og endurteknar hreyfingar með höndum eða handleggjum (52%).