Erfðatækni til að endurvekja jakann

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar deildi hart á verkalýðshreyfinguna í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.  Kári sagði brýna nauðsyn til að nýta nýjustu tækni erfðavísindanna til að endurvekja gamla verkalýðsforkólfa eins og Guðmund Jaka hjá Dagsbrún.


Hann sagði verkalýðsfélögin vera orðin of stór og gæta alltof ólíkra hagsmuna.


 „Ég held við þurfum að endurvekja gömlu Dagsbrún og ég held við ættum að nýta okkur nýjustu tækni erfðafræðinnar til þess að endurvekja Guðmund Jaka og fólk sem batt sig við krana til að koma í veg fyrir að hægt væri að dæla olíu í land í verkföllum. Ég held að við ættum að einbeita okkur meira að þörfum þess fólks sem minnst mega sín í íslensku samfélagi,“ sagði Kári í viðtalinu.


Kári gagnrýndi einnig kröfu BHM um hærri laun vegna menntunar því nám væri ekki mælikvarði á hversu mikið fólk legði til samfélagsins.  Háskólahugtakið á Íslandi hefði verið þynnt út með því að opna háskóla í hverju krummaskuði og því væri miklu lægri standard á háskólamenntun en fyrir 50 árum.


Hann sagði einnig ámælisvert að fjármálaráðherra hyggðist ekki veita lífeyrisþegum sömu kjarabætur og nú hefur verið samið um á almenna markaðinum.


 „Það lýsir ákveðinni firringu að átta sig ekki á því að auðvitað þurfa lífeyrisþegar landsins að njóta hinn sömu kjarabóta og allir aðrir,“ sagði Kári.