Það skiptir engu máli, hversu lengi fólk hefur búið saman eða hvort það á börn, erfðarétturinn er enginn við fráfall maka ef fólk hefur ekki gifst.
Þetta þýðir að fólk í sambúð hefur ekki leyfi til að sitja í óskiptu búi og segir Gísli Tryggvason lögmaður, að þetta atriði geti oft vegið hvað þyngst, þegar maki fellur frá. Sjálfur segist hann oft gefa fólki þá lögfræðilegu ráðgjöf að ganga sem fyrst í hjúskap ef það er ekki gift, sérstaklega ef heilsubrestur eða veikindi koma upp.
Þetta kom fram í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut og vakið hefur mikla athygli, enda eru erfðamál úrlausnarmál margra í samfélaginu. Þar kom einnig fram að ef fólk vill tryggja það að eftirlifandi maki geti setið í óskiptu búi fram að andláti, þá sé einfaldast að tilgreina það í erfðaskrá. Annars hafa börn svigrúm til að fara fram á uppgjör á dánarbúi. Stjúpbörn gætu til dæmis alltaf gert það með 12 mánaða fyrirvara og börn hins látna geta einnig farið fram á uppgjör, ef þeim finnst eignum vera sólundað.