Dögg Pálsdóttir lögmaður og Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík gjörþekkja vandamál sem tengjast fjármálum eldra fólks. Þau eru gestir Helga Péturssonar í þættinum Okkar fólk í kvöld og ræða margvísleg úrlausnarefni sem tengjast efri árum og fjármálum. Ótrúlega oft skapast mikil vandamál innan fjölskyldna vegna erfðamála og mjög margir láta alveg undir höfuð leggjast að gera erfðaskrá.
Þá varar fólk sig alls ekki á allskyns skattagildrum þegar það ætlar að selja eignir og minnka við sig.
Þátturinn er endursýndur kl.22.30 í kvöld, á tveggja klukkustundafresti til kl.18 á miðvikudag og aftur um næstu helgi.