Helgi Tómasson, prófessor í hagrannsóknum og tölfræði, er gestur Björns Jóns Bragasonar í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Helgi hefur undanfarin ár skrifað reglulega í blöð um fasteignagjöldin, en hann líkir þeim við það að borga skatt af lottóvinningi sem hann fékk ekki. Grípum niður í viðtalið:
„Þetta er skattur sem hækkar mjög bratt og ef nágranninn selur dýrt þá á ég að borga skatta af hans söluhagnaði.“
Helgi nefnir í viðtalinu að ríki Evrópusambandsins hafi að mestu aflagt eignarskatta og segir fyrirkomulag fasteignagjalda vera ógn við eignarréttinn:
„Þeir sem eru að semja nýja stjórnarskrá ættu að huga að því að verja eignarréttinn, sem eru mikilvæg mannréttindi. Þau lönd sem viljum bera okkur saman við hafa þessi mannréttindi í heiðri ... Við erum komin út á hættulega braut þegar sjálfvirk reikniformúla reiknar út skattinn. Það þarf her manns af gáfuðu fólki til að reikna þetta út og þetta gáfaða fólk gæti gert mun meira gagn fyrir þjóðina í einhverjum öðrum verkefnum.“
Hann nefnir einnig að skattur á einn sé skattur á alla:
„Sumir halda að það sé betra að láta fyrirtækin borga skatt og halda að þá borgi einstaklingarnir ekki sjálfir, en eina leið kaupmannsins til að borga skattinn er að taka hann af viðskiptavininum – þaðan koma hans tekjur.“
Í viðtalinu ræðir Helgi einnig um erfðafjárskatt:
„Svíþjóð, Noregur og Austurríki eru komin með erfðafjárskattinn alveg niður í núll. Göran Persson, forsætisráðherra sósíaldemókrata í Svíþjóð, sló erfðafjárskattinn endanlega út af borðinu vegna þess að erfðafjárskatturinn kom mjög illa við lágtekjufólk sem hafði lítil tækifæri til að skipuleggja sig. Fólk var þá kannski að deila um það hvort það ætti að selja sumarbústaðinn eða seglbátinn til að eiga fyrir erfðafjárskattinum og svo framvegis á meðan stærri aðilar áttu miklu auðveldara með að skipuleggja sín fjármál.“
Helgi bendir enn fremur á að í Danmörku sé hægt að fresta greiðslu erfðafjárskatts, til dæmis ef erfingjar telja tímann óhagstæðan til að selja eignir.
„Meðan uppgjör var þvingað innan árs var skapað tækifæri fyrir hrægammafyrirtæki sem eltu uppi lágtekjufólk sem hafði erft eitthvað og vissu að það væri þvingað til að selja ... Þetta á ekkert skylt við vinstri-hægripólitík. Þetta er bara spurning um skilvirka skattastefnu. Best er að hafa skattana sem skilvirkasta svo þeir komi inn í ríkissjóð með sem ódýrustum hætti á sama hátt og við viljum keyra um á sparneytnum bíl: Við viljum ekki eyða óþarfa bensíni í aksturinn og það á ekki að þurfa að eyða of miklu umstangi í skattheimtuna.“
Nánar er rætt við Helga í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.