Valdaránstilraun tyrkneska hersins um helgina hefur ýtt af stað atburðarrás sem er ískyggileg. Tayip Erdogan forseti sýnir grímulausa einræðistilburði og hefur látið handtaka meira en sex þúsund manns. Fyrir um tveimur árum stóð Erdogan einnig fyrir handtökum þeirra sem ekki þóttu honum þóknanlegir innan hersins og meðal saksóknara og dómara. Tyrkland er Nató ríki og er millistykki á milli Norður Afríku og Evrópu og sem slíkt yrðu afleiðingarnar af miklum óstöðugleika í landinu gríðarlega alvarlegar fyrir alla Evrópu og víðar. Íbúar í Tyrklandi hafa sumir skrifað á samfélagsmiðlana að nú hafi lýðræðið í Tyrklandi gefið upp öndina efir að hafa verið á dánarbeðinu lengi. Leiðtogar Vesturlanda sem um helgina lýstu allir yfir stuðningi við Erdogan horfa nú skelkaðir á tilburði hans gegn embættismönnum og öðrum borgurum í landinu. Stjórnmálafræðingarnir, Sema Erla Serdar, sem er hálf tyrknesk, og Ármann Snævarr verða gestir kl.21.30 á Hringbraut í kvöld.
Erdogan beitir hörðu
Fleiri fréttir
Nýjast