Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins skilar erllefuhundruð Íslendingum námsstyrkjum á þessu ári og gefur nú í fyrsta skipti íslenskum háskólum tækifæri til samstarfs við lönd utan ESB.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarmiðstöð Í en þar segir að Rannís hafi úthlutað náms- og þjálfunarstyrkjum árið 2015 úr menntahluta Erasmus+ áætlunar ESB að andvirði ríflega 400 milljóna króna til 39 verkefna með þátttöku nærri eitt hundrað skóla, fyrirtækja og stofnana. Eftirspurningin hafi verið næstum tvöföld. Yfir eitt þúsund einstaklingar njóti góðs af styrkjunum að þessu sinni, en það sé 30% aukning frá síðasta ári.
Að þessu sinni var hæstum styrkjum úthlutað til Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Tækniskólans og Iðunnar fræðsluseturs. Þessi verkefni gefa nemendum og starfsfólki skóla á öllum skólastigum, fræðslustofnana og fyrirtækja tækifæri til að taka hluta af námi eða sinna starfsþjálfun í 33 löndum í Evrópu.
Íslenskir háskólar geta í fyrsta sinn fengið styrki til stúdenta- og starfsmannaskipta til landa utan Evrópu. Úthlutað var ríflega 30 m.kr. til slíkra verkefna sem fela meðal annars í sér samstarf við Armeníu, Ísrael, Bandaríkin og Kína.
Sveitarfélögum bauðst í fyrsta sinn að sækja um styrki fyrir hönd eigin skólastofnana og nýttu sér það vel. Af 40 umsóknum í skólahluta voru 5 frá sveitarfélögum með þátttöku um 50 leik- og grunnskóla.
Markmið Erasmus+ áætlunarinnar eru m.a. að styðja verkefni sem miða að því að efla grunnþætti eins og læsi og stærðfræði, ýta undir sköpunargáfu og frumkvæði nemenda, vinna gegn brotthvarfi, innleiða upplýsingatækni og almennt efla gæði í menntun á öllum skólastigum og í atvinnulífi.