Leiðsögumenn sem hafa aldrei komið til Íslands áður starfa hér á landi sem leiðsögumenn, segir Bryndís Kristjánsdóttir leiðsögumaður og stjórnarmaður í Félagi leiðsögumanna og mörg tilvik séu um að leiðsögumenn hafi ekki tilskylda þekkingu og hæfni. Starfsheitið er ekki lögverndað og því ganga margir í þessi störf án þess að hafa rétta vottun til starfans.
„Við fáum alls konar upplýsingar frá rútubílstjórum um þessi tilvik. Eitt var þannig að leiðsögumaðurinn sem var af erlendum uppruna vissi fátt um land og þjóð og spurði bílstjórann hvort vatnið í kringum Ísland væri salt“, segir Bryndís i viðtali á Hringbraut og þetta sé dæmi um þær undarlegu spurningar sem bílstjórarnir fá frá þeim sem vita fátt um land og þjóð er eru að leiðsegja hópum um landið. Hún bætir við að mörg dæmi berist félaginu um „fúskara“ í faginu sem fara um landið með hópa að ferðaskrifstofur sem séu vandar að virðingu sinni ráði ekki þannig fólk til starfa. Ábyrgð leiðsögumanna sé mikil og snúi að mörgu í starfinu. „Hugsaðu þér að við skulum leyfa þessu að viðgangast“, segir Bryndís.
Hægt að hafa túlk
„Við erum búin að skrifa ótal greinar og tala við yfirvöld og fleira“, sagði Bryndís og að erlendis séu leiðsögumenn mjög augljóslega með réttindin á hreinu. Ef tungumálaerfiðleikar eru til staðar gagnvart einhverjum erlendum hópi, þá sé vaninn í borgum erlendis að túlkur sé með í ferðinni sem þarf ekki leiðsögumannapróf.
„Villta vestrið“
„Þetta er villta vestrið hérna“, segir Bryndís á Hringbraut og vísar til þess að alls konar fólk titli sig leiðsögumenn núna. Hið viðurkennda merki leiðsögumanna sem hefur verið í tugi ára bera þeir sem hafa tilskilið nám að baki, segir Bryndís en núnar er hægt að kaupa eitthvað annað merki á lítinn pening sem enginn veit hvað er á bak við.
Bryndís kennir einnig í leiðsöguskólanum við MK. Félagið hefur verið til síðan 1972. Kröfurnar eru strangar í því námi sem skólinn í Kópavogi hefur boðið upp á síðan 1976 og einnig við Endurmenntun HÍ og í leiðsögunáminu við Símenntun Háskólans á Akureyri. Námið er frá einu ári upp í þrjár annir og krafist er stúdentsprófs eða mikillar starfsreynslu. Viðtalið við Bryndísi er hér. Athugið, viðtalið hefst á mín.12.50