Er twitter miðill elítunnar?


Fjörleg umræða stendur nú yfir á facebook um þá staðhæfingu Birgis Guðmundssonar, stjórnmálafræðings og dósents við Háskólann á Akureyri hvort Twitter sé miðill elítunnar.
Haft er eftir Birgi  í úttekt Kjarnans um tíst samtímans: \"Birgir seg­ist ekki hafa lagt sig mikið eftir Twitter og að mið­ill­inn sé tal­inn hálf­gerður elítu­mið­ill, þar sem blaða­menn, íþrótta­á­huga­menn og stjórn­mála­menn séu sam­an­komn­ir. Almenn­ingur sé ekki svo mikið á Twitt­er.\"
Sveinn Armarson, blaðamaður á Fréttablaðinu skrifar vegna ummæla Birgis: \"Stjórnmálafræðingur kallar Twitter \"elítumiðil\". Ein fjarstæðukenndasta „greining“ stjórnmálafræðings á aragrúa \"lítilla samfélaga\" sem búa á twitter, alveg eins uppbyggt og samfélagið sjálft. Þetta er svo „steríó-týpuð“ greining að það er ekki hægt að taka hana alvarlega.\"
Sumir sem taka til máls á þræði Sveins eru sammála, en aðrir ekki eins og gengur. Annar blaðamaður, menningargúru, Símon Birgisson, skrifar: \"Fékk nóg af Twitter. Einhverskonar íslandskeppni í kaldhæðni og fimmaurabröndurum. Engin alvöru umræða.\"
Jakob Bjarnar Grétarsson, hinn stílfimi kollega Sveins hjá 365, segir: \"Ég hef tekið eftir því að fræðasamfélagið verður fremur hjákátlegt þegar það reynir að greina gerjun á netinu og samfélagsmiðlum. Það er alltaf fimm árum á eftir.\"
Eftir stendur staðhæfingin og spurningin hvort almenningur sé ekki svo mikið á Twitter og hvort elítan einoki tístið. Að telja blaðamenn til elítunnar er einnig eitthvað sem sumir myndu ekki skrifa upp á. Þar mætti nefna þá 400 blaðamenn sem hafa umbylt elítunni víða um heim, hinum eiginlegu valdamönnum, með afhjúpunum í Panamaskjölunum.

-BÞ