Eitt og hálft ár er liðið frá því fyrsta ebólutilfellið kom upp í Vestur-Afríku. Um 27.000 manns hafa smitast og tæplega 12.000 manns hafa látist á þessu tímabili. Nú virðist loks sjá fyrir endann á þessum skæða faraldri.
Til marks um þetta er að Líbería telst nú vera ebólulaust land, og einungis nokkur tilfelli hafa verið skráð í Síerra Leóne og Gíneu á síðustu vikum.
Ólafsbörnin Magna Björk, Gísli Rafn og Sólveig fara yfir stöðu ebólumála í sjónvarpsþættinum Heimsljós í kvöld auk þess sem Sigurður Guðmundsson læknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans ræðir um eðli ebólunnar, smitleiðir og siðferðilegar spurningar sem vaknað hafa í kjölfar faraldursins.
Magna Björk starfaði í ebóluteymi Alþjóða Rauða krossins þar til fyrir tveimur vikum, og Gísli Rafn, yfirmaður neyðarmála hjá NetHope samtökunum, hefur verið með annan fótinn á ebólusvæðum síðasta ár.
Heimsljós er á dagskrá klukkan 20.45 í kvöld.