Örn Úlfar Sævarsson, íslenskufræðingur og dómari í Gettu betur, hefur sett saman mögulegan ráðherralista fyrir nýja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Listinn hefur vakið mikla athygli á Twitter þar sem hann þykir raunsær og vera nærri lagi því sem við eigum að venjast næstu fjögur árin.
Er þetta ekki nærri lagi?
— Örn Úlfar Sævarsson (@ornulfar) September 29, 2021
Forsætis: Katrín
Félagsm: Svandís
Umhv: Mummi
Fjárm: Bjarni
Heilbrigðis: Gulli
Iðn/ný/ferð: Þórdís
Dómsm: Áslaug
Samg: Sigurður I
Utn: Lilja D
Sjá/landb: Ásmundur
Mennta: Willum
Forseti alþingis: Birgir Árm.
Form. fjárlagan.: Líneik#samkvæmisleikurinn
Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson segir að Framsókn hafi unnið þessar kosningar og eigi því að fá forseta Alþingis. „Einfaldasta myndin væri bara að forseti alþingis færðist yfir til Framsóknar. Og það vill til að Willum er frábær fyrirliði.“
Örn Úlfar bendir á að gjaldið er mishátt fyrir hvert ráðuneyti: „Ráðuneytin eru misstór, giska á að V með minna fylgi þurfi að borga fyrir For með minni ráðuneytum og missi forseta.“
Breki Logason, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir eitt atriði alveg 100 prósent rétt:
„Það eina sem er 100% rétt hjá þér er að Birgir Árm verður forseti Alþingis. Sé ekkert annað í stöðunni. Vil sjá Willum fá ráðherrastól. Kæmi síðan ekki á óvart að við sæjum ennfrekari áherslu á loftslagsmálin með því að setja þau í eitt ráðuneyti.“