Er þetta nýi sölustjóri wow air?

Svo virðist sem búið sé að ráða sölustjóra fyrir endurkomu WOW air.

Michelle Ballarin, sem hyggst endurreisa flugfélagið, setti stöðuuppfærslu á Linkedin í byrjun janúar að WOW air muni hefja flug innan við nokkurra vikna. Þá fer nú að hefjast ballið hjá Ballarin og er greinilega þegar búið að ráða fólk í störf. 

Maður að nafni Mark Pond hefur skráð starfsheiti sitt á Linkedin sem aðstoðarforstjóri í söludeild WOW air. Sjálfur býr hann í Flórída og er skráður með reynslu í flugmálum þó ekki sé farið nánar út í hvers kyns reynsla það sé. 

\"Nýr