Karli Ágústi Úlfssyni var ekki orða vant frekar en fyrri daginn í byrjun Helgarinnar á laugardag, en þar fór hann yfir sviðið eins og honum er einum er lagið - og hefur væntanlega sviðið undan á stöku stað.
Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is, en gestir hans voru félagarnir í Hundum í óskilum sem fóru vægast sagt á kostum í þættinum þar sem leikið var á furðulegustu hljóðfæri.
En inngangsorð Karls Ágústs voru á þessa leið:
\"Það kom í ljós í vikunni að formaður Landssambands lögreglumanna ferðast í farþegaflugi með hlaðna skammbyssu í vasanum,\" varð kappanum fyrst að orði: \"Þetta kom ýmsum á óvart,\" hélt hann áfram \"en höfum í huga að enginn fettir fingur út í það þó að börn taki bangsann sinn með sér í flug. Það verður hver að fá að hafa það sem veitir honum öryggi og gleði.\"
\"Og þetta var vikan þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra lýsti því yfir í viðtali að hann gæti ekki lengur tjáð sig opinberlega með góðu móti af ótta við að snúið yrði út úr orðum sínum. Þetta er auðvitað skelfileg skoðanakúgun og enn eitt dæmið um eineltið sem forsætisráðherra er beittur. Þessi frétt var ekki fyrr farin í loftið en Sigmundur lýsti því yfir að þetta væri útúrsnúningur og fólk væri almennt að misskilja orð sín - alveg eins og allt sem hann hefur sagt um afnám verðtrygginarinnar - alveg eins og allt sem hann hefur sagt um loftslagsmálin - alveg eins og allt sem hann hefur sagt um málefni flóttamanna. Þetta er alveg rétt, það borgar sig ekki að segja neitt, því það misskilst allt,\" og þar með brast Karl Ágúst í söng:
VERTU EKKI AÐ SNÚA SVONA ALLTAF ÚTÚR
EF ÞÚ MEINAR EI ÞAÐ SAMA OG ÉG
EF EITTHVAÐ LÆT ÉG ÚT ÚR MÉR ÞAÐ ORÐIÐ ER AÐ STEYPU ER Í FJÖLMIÐLA ÞAÐ FER.
OG EF ÉG ER NÚ EINHVERS SPURÐUR
ÉG EKKI ÞORI AÐ SEGJA NOKKURT ORÐ
EN EINA ÓSK ÉG ÆTLA AÐ SEGJA ÞÉR
EKKI HAFA ÞETTA SAMT EFTIR MÉR
VERTU EKKI AÐ SNÚA SVONA ALLTAF ÚTÚR EF ÞÚ MEINAR EI ÞAÐ SAMA OG ÉG.
En næst þetta: \"Sjónvarpsstððin Omega ætlar að standa fyrir kraftaverkahátíð á næstu dögum, þar sem blindir munu fá sýn og lamaðir spretta upp úr hjólastólunum. Ég legg til að fyrsta kraftaverkið verði að þjóðin öðlist hæfileikann til að hlusta á Sigmund Davíð án þess að misskilja hann eða snúa útúr fyrir honum,\" benti Karl söfnuðinum vinsamlegast á.
\"En okkur var líka greint frá því í vikunni að ríkisstjórninni gengi afar hægt að koma málum til meðferðar í þinginu,\" hélt leikstjórinn áfram: \"Af 127 málum sem áttu að vera komin fram fyrir lok þessa mánaðar eru víst aðeins 30 komin á koppinn. Þingmenn sitja almennt geispandi og borandi í nefið á meðan þeir bíða eftir frumvörpum frá stjórninni. Nú verður maður að spyrja: Er þetta latasta ríkisstjórn Íslands frá upphafi? Eða er þetta bara vítamínsskortur? Verður ekki þessi ríkisstjórn að skipta um lífsstíl, rífa sig upp úr þessu sleni og fara að mæta í ræktina? Og svo í beinu framhaldi af því að fara að mæta í vinnun? Nema þarna sé sóknarfæri fyrir nýtt kraftaverk. Eigum við að setja Jesús og pabba hans í málið,\" spurði kappinn aftur - og aftur.
Og þar með brast hann í bæn: \"Góði drottinn. Við biðjum þig að líta í náð til þessarar ríkisstjórnar. Fæ ég halelúja við því? Rektu úr henni fjandans letina! Taktu frá henni djöflatertuna svo hún geti mætt í vinnuna. Verndaðu hana fyrir grímulausa hulduhernum, en plís - góði guð - viltu láta hana drattast á lappir og koma sér að verki. Halelúja!\"
Hann var ekki hættur, o nei: \"Á sama tíma og ráðherrar Íslands koma litlu sem engu í verk eru þeir að fá kauphækkun uppá ríflega 100.000 krónur á mánuði. Þarna gæti verið komin skýringin á litlum afköstum stjórnarinnar, þetta var einfaldlega alltof illa borgað til að fólk nennti að standa í þessu. Halelúja.\"
Og svo þetta með Alcoa sem rekur álverið á Reyðarfirði og hefur aldrei borgað tekjuskatt á Íslandi: \"Halelúja! Og hvers vegna ekki? Jú, vegna þess að þetta risafyrirtæki er rekið með bullandi tapi, einkum og sér í lagi vegna þess að það skuldar sjálfu sér stórfé og gæti ekki staðið í skilum við sjálft sig ef það þyrfti ofan á allt annað að borga íslenska skatta. Og hvað ætlum við Íslendingar að gera? Við ætlum að reisa fleiri álver. Halelúja. Það hlýtur að koma að því einhvern daginn að það verði kraftaverk\".
Hann klikkti út með þessu: \"Og útlendingum þykir eitt af því merkilegasta við Íslendinga hvað þeir hafa fjörugt ímyndunarafl. Íslendingar trúa á álfa og tröll, huldufólk og Lagarfljótsorminn, hulduherinn og íslensku krónuna. Þó er það goðsögnin um íslenska góðærið sem útlendingar eiga erfiðast með að átta sig á.\"
Helgin með Karli Ágústi er endursýnd á Hringbraut á miðvikudagskvöld klukkan 21:30.