Er þetta eitt besta sparnaðarráð í heimi? svona græddi stefán 1.3 milljón á ári – „þessi tilraun hefur gengið vel upp“

„Fyrir um það bil ári síðan tókum við á heimilinu meðvitaða ákvörðun um að fækka um einn bíl, losa okkur við stóra bensínbílinn og láta einn rafmagnsbíl duga. Ég keypti mér á sama tíma forláta rafmagnshjól í IKEA, skjannahvítt og setti að sjálfsögðu á það svartar rendur.“

Þetta segir Stefán Eiríksson borgarritari. Þar greinir hann frá því hvernig hann fór að því að spara 1.3 milljónir króna síðasta árið. Tilraunin var eins og áður segir að fækka um einn bíl. Stefán segir:

„Þessi tilraun hefur gengið vel upp, rafmagnshjólið dugað fullkomlega til að koma mér til og frá vinnu og annað sem ég þarf að fara daglega, og á þessu tæpa ári er ég skv. mælingu hjólsins búinn að fara rétt um 1900 km á hjólinu. Geggjað farartæki, rafmagnið tekur stóru álagspunkta hjólreiðanna, brekkur og vind, en gefur einnig fína hreyfingu og ferska útiveru.“

Með þessum fararskjóta kveðst Stefán oft vera fljótari en að ferðast með bíl, sérstaklega á álagstíma. Þá hefur þetta gríðarlega fjárhagslega þýðingu. Stefán segir:

„Ég nota Meniga til að fylgjast með heimilisútgjöldunum og á þessum myndum sjáiði áhugaverðan samanburð milli áranna 2018 og 2019. Liðurinn bílar og samgöngur í heimilisbókhaldinu hefur dregist umtalsvert saman, nettó um ca. 100 þús. kr. á mánuði við þessa breytingu eina.

Undir þennan flokk fellur: Eldsneyti (bensín og rafmagn á hleðslustöðum), viðhald og rekstur, bílalán, leigubílar og strætó sem og bílastæði.“

 

\"\"

\"\"

Árið á undan var kostnaður um 1.8 milljón króna. Það sem af er þessu ári er kostnaður undir hálfri milljón í útgjöldum á öllum sömu liðum.  

„Og nota bene; inn í þessum tölum eru ekki tryggingar vegna bílanna, þar höfum við sparað til viðbótar 160 þús. kr. sem fóru í að tryggja stóra bensínbílinn í eitt ár. Mánaðarkostnaður við alla þessa flokka var í fyrra rúmar 150 þús. kr. á mánuði (164 þús. með tryggingum) en í ár ríflega 55 þús. kr. á mánuði. Nettó sparnaður ca. 1,3 m.kr. á ársgrundvelli þegar tryggingar eru taldar með.“ Þá segir Stefán að lokum:

Á tímum rafknúinna hjóla og hlaupahjóla, með okkar frábæra strætó, leigubílum og snattbílaleigum er það ekki bara umhverfisvænt og einfalt að losa sig við einn bíl heldur beinlínis fjárhagslega skynsamlegt.