Óli Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaupsýslumaður og stjórnmálarýnir skrifar grein í dálknum Umræðan í Morgunblaðinu.
Óli Anton segir í grein sinni að Seðlabanki Íslands verði að lækka stýrivexti tafarlaust í nokkrum skipulegum skrefum niður í 0,5% til 2% eftir viðbrögðum og þörfum. Jafnframt þarf bankinn að gefa gjaldeyrismarkaðinn fullkomlega frjálsan. Að minnsta kosti fyrir innlenda aðila.
Íslenska krónan er nú enn búin að styrkjast um tíu prósent á þrjátíu dögum. Það þarf ekki að fara í grafgötur með það að þessi þróun gengis íslensku krónunnar er við það að kippa fótunum undan helstu atvinnuvegum Íslands skrifar Óli Anton.
Óli Anton bætir því við að íslenska hagkerfið er allt of lítið til að halda úti stöðugum gjaldmiðli. Seðlabanki Íslands ber meginábyrgð á þeirri hrikalegu styrkingu króunnar sem orðið hefur. Og því ófremdarástandi sem þetta mun í vaxandi mæli leiða til.
Óli Anton skrifar að þar sem innflutningsverð virðist enn byggjast að miklu leiti á 140 krónur í evrunni, og það er líka gengi sem ætti að skapa sjávarútvegi og ferðaþjónustu og útflutningsiðnaðinum trausta og góða afkomu þarf Seðlabankinn að reyna að stýra krónunni inn á það gengissvið.
En endanaleg lausn fæst ekki á vandanum fyrr en evran verður tekin upp.
Nánar www.mbl.is