Í Þjóðbrautarþættinum í fyrramálið verður meðal annars spurt hvort ríkisstjórnin, sé góð ríkisstjórn eða vond. Eflaust fer það eftir hver er spurður hvert svarið er. Þar sem líður að kosningum verður núverandi ríkisstjórn metin, er hún góð eða ekki?
Gestir þáttarins eru nokkrir. Margrét Tryggvadóttir og Sigurður Kári Kristjánsson fyrrverandi alþingismenn, Svandís Svavarsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson núverandi þingmenn og fyrrverandi ráðherrar og svo Þorsteinn Pálsson fyrrum forsætisráðherra.
Að auki verða skopmyndir blaðanna skoðaðar og metnar. Fjörugar umræður verða á Hringbraut í fyrramálið klukkan tíu. Umræðan er á Hringbraut.
Þjóðbraut á dagskrá Hringbrautar klukkan tíu í fyrramálið.