Áströlsk flugmálayfirvöld telja nær fullvíst að flugvélabrakið sem fannst í gær á Indlandshafi sé brot úr þotu malasíska flugfélagsins sem hvarf í mars í fyrra með 239 manns um borð. Brakið hefur þá rekið með hafstraumum um það bil 5000 kílómetra leið.
Um er að ræða tveggja metra langt stykki, mögulega úr stýrisvæng vélarinnar. Brakið fannst á strönd La Reunion á Indlandshafi í fyrradag og vöknuðu strax vonir um að eitt dularfyllsta hvarf flugsögunnar væri að leysast. Það virðist vera að ganga eftir.
Brakið var sent til Frakklands til frekari rannsóknar: \"Við erum nánast sannfærðir um að brakið er úr MH370,“ segir Martin Dolan, yfirmaður samgöngustofu Ástralíu sem segir að lögun hlutarins sem fannst geti vart verið af annarri þotutegund en Boeing 777.
Dolan segist vonast til þess að þetta verði ljóst innan sólarhrings en margir sérfræðingar segja að brakið sé úr væng Boeing 777, svo kallaður flapsi,flaperon á ensku, og ef svo er þá geti vart verið um aðra vél að ræða en flug MH370.