Er önnur kollsteypa fram undan?

Efnahagsstjórnin sem bíður nýrrar ríkisstjórnar var helsta umfjöllunarefni Ritstjóranna á Hringbraut í gærkvöld, en þar leiddu saman hesta sína Stefán Einar Stefánsson, aðstoðarfréttastjóri á Viðskipta-Mogganum og Trausti Hafliðason, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins.

Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar var ekki einasta rætt um mögulega stjórnarmyndun þar sem mestar líkur virðast vera um sinn á breiðu samstarfi sjálfstæðismanna og sósíalista með einu eða tveimur hjálpardekkjum, heldur öðru fremur fjallað um þá ökónómísku og pólitísku jafnvægislist sem bíður ráðamanna á milli annars vegar aðhaldskröfu í ríkisfjármálum á tímum aukinnar þenslu og hins vegar háværs tilkalls til stóraukinna útgjalda til vega-, mennta- og heilbrigðiskerfis og er þá ótalinn óróinn á vinnumarkaði.

Og ef til vill er megin spurning þáttarins að þessu sinni sú hvort landsmenn þurfi að óttast aðra kollsteypu á innan við áratug, eða hvort greina megi einhverjar kerfisbreytingar og raunverulegan lærdóm af hruninu frá því fyrir átta árum sem hamli því og hindri eða illa fari í annað sinn á þessum stutta tíma.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.