Um leið og forkólfar Alþýðusambands Íslands fagna framkomnu lagafrumvarpi þingmanna úr fjórum flokkum á Alþingi um aðgerðir gegn kennitöluflakki undrast þeir stórum viðbrögð Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, viðskiptaráðherra sem leggst gegn frumvarpinu.
Athygli hefur vakið að flutningsmenn frumvarpsins koma úr öllum flokkum þingsins, nema Sjálfstæðisflokknum, en téður ráðherra geldur varhug við því af ótta við að það dragi úr nýsköpun og frumkvæði í viðskiptalífinu. Frumvarpið kveður meðal annars á um að stjórnendur fyrirtækja geti ekki stofnað nýtt félag allt að þremur árum eftir gjaldþrot félags sem þeir standa að og reka.
ASÍ er hvumsa yfir viðbrögðum ráðherrans í þá veru að frumvarpið sé of íþyngjandi fyrir nýsköpunarfyrirtæki þar sem menn þurfi \"oft á tíðum að gera margar tilraunir með rekstur.“
Og ASÍ segir að gera verði kröfu til þess að ráðherrann skýri hvað hann eigi við með þessum orðum - og minnir þar á greinargerð sambandsins um málið frá fyrri tíð þar sem fram komi að allmargir einstaklingar hafi á fáum árum sett 10 fyrirtæki eða fleiri í þrot með stórkostlegum skaða fyrir samfélagið: \"Þar af setti sami maðurinn 29 fyrirtæki í þrot og fékk að halda áfram óáreittur. Er það nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi að skapi ráðherrans,\" spyr ASÍ sem fagnar sem fyrr segir framkomnu fyrmvarpi þingmanna úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum sem feli í sér fyrstu tilburði á Alþingi um árabil til að stemma stigu við kennitöluflakki.