Fólk hringir í fiskbúðina til að athuga hvort það sé fáanlegur fiskur, segir Steinar Bjarki Magnússon hjá fiskbúðinni Hafið í Kópavogi. Það er nóg til, segir hann en verðið hefur sveiflast gífurlega undanfarið sem búðin tekur á sig, segir Steinar Bjarki. Dagróðrarbátar sjá um aflann. Bryggjan skrapp í fiskbúðina hafið í Kópavoginum og athugaði hvaða áhrif sjómannaverkfallið hefur á fiskbúðir. Steinar Bjarki Magnússon, framkvæmdastjórinn hjá Hafinu sagði verðið hafa sveiflast mikið frá því að verkfall hófst 14.des sl. Hins vegar væri fólk með hugmyndir um að enginn fiskur væri fáanlegur í soðið.
Bryggjan er á dagskrá í kvöld, mánudag 23.janúar Kl.21.00, endursýnd og aðgengileg á \"flakkaranum\"