Er loks komið í ljós af hverju ballarin keypti wow? trúa ekki á þorskútflutning – „allt mjög trúverðugt við þessi áform“

Það er margt á huldu með tilgang  Michelle Ballarin að koma vélum WOW air aftur í loftið. Hún kveðst fyrst um sinn ætla að einbeita sér að fraktflutningum. Á vef RÚV var greint frá því að til stæði að flytja þorsk til Bandaríkjanna en ekki fólk. Þykir mörgum það nokkuð einkennilegt og í DV er vitnað í Vilhjálm Þorsteinsson, fyrrverandi gjaldkera Samfylkingarinnar sem finnst vera nokkur ólykt af þeirri yfirlýsingu. Telur hann líklegra að vélarnir verði nýttar í hergagnaflutninga í stað fiska.

Í umfjöllun DV er einnig vitnað í Karen Kjartansdóttur, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Hún segir kaldhæðnislega á Fésbók:

„Já, hafa Íslendingar flutt þorskhausa á austurströnd Bandaríkjanna? Íbúar New York og Boston alveg sólgnir í þá? og hvers vegna að flytja þá með flugi? Allt mjög trúverðugt við þessi áform.“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar tekur undir orð hennar og segir:

„Það var þarna mómentið þegar hún átti í vandræðum með útborgun fyrir flugfélagið, sem reyndist svo í heild kosta 50 milljónir, eða eins og ein kjallaraíbúð í þingholtunum. Þá fór ég aðeins að spá í hvort hún væri kannski að djóka í okkur með rekstur flugfélags. En hey…. ég vona samt enn að hún hefji í nóvember beint flug til Houston.“

Vilhjálmur rifjar síðan upp tengsl Ballarin við sómalíska vígamenn og sjóræningja. Hann segir:

 „Þetta er farið að lykta af hergagnaflutningum? Hvað er allt þetta tal um “umsvif Bandaríkjastjórnar”? Menn hafi bakgrunn Ballarin í huga, hún er m.a. þekkt fyrir að vera milligöngumaður við sómalíska vígamenn og sjóræningja.“