Miklar breytingar í aldurssamsetningu þjóðarinnar eru að verða öllum ljósar. Hvort samfélagið hefur undirbúið þessar breytingar er allt annað mál og vekur fjölmargar spurningar.
Höfum við sniðið gríðarlega öflugt lífeyriskerfi okkar að þessum breytingum, er húsnæðismarkaður fjölbreyttur og getur hann annað allri eftirspurn og hver er staða eldra fólks á vinnumarkaði, ef það vill halda áfram að vinna eftir að hefðbundnu aldurstakmarki er náð?
Stefán Halldórsson, verkefnisstjóri, ræðir á mannamáli við Helga Pétursson um alla þessa þætti út frá stöðu lífeyriskerfisins, en Stefán hafði yfirumsjón með viðamikilli könnun sem gerð var á stöðu þess, en lífeyriskerfið tengist öllum þessum þáttum í lífi okkar, bæði sem eftirlaunagreiðandi, lánveitandi á húsnæðismarkaði og ekki síst fjárfestir og hreyfiafl í atvinnulífi þjóðarinnar.
Þættirnir Okkar fólk eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00 á fimmtudagskvöldum.