Reynist hjásetan flokkunum kjánaleg?

Öruggur sigur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í heimakjördæmi hans um helgina varr til umræðu í Ritstjórunum í gærkvöld þar sem rætt var um það hvernig hann kom til og hvaða áhrif hann muni hafa innan flokksins.

En framsóknarmenn áttu ekki einir sviðið í þættinum, þingmannaskróp við atkvæðagreiðslur varr einnig til umræðu, svo og hjáseta Pírata og Samfylkingarinnar í búvörusamningaatkvæðagreiðslunni sem þykir af mörgum koma heldur kjánalega út fyrir báðar þessar hreyfingar sem hafa viljað breyta stöðnuðu kerfi og talað fyrir almannahagsmunum framar sérhagsmunum.

Þá var stórum hluta þáttarins varið í meint bakslag í kvennabaráttunni, ekki bara í pólitíkinni heldur og í atvinnulífinu og áherslum samfélagsins, en áberandi er að á sama tíma og uppsveiflu gætir í efnahag og í rekstri ríkisins virðast málaflokkar velferðar eiga mjög undir högg að sækja; innkaupabann hefur verið sett í framhaldsskólum, ekki eru lengur til peningar fyrir lyfjum sem lina þjáningar sjúklinga, vegir eru víða að grotna niður, svo og náttúruparadísir um allt land - og ekki er ástandið skárra hjá stærstu sveitarfélgum landsins, svo sem Reykjavíkurborg þar sem skerða hefur þurft þjónustu við leikskóla, grunnskóla og sérskóla fyrir fötluð börn á sama tíma og borgaryfirvöld eru gagnrýnd fyrir að taka gæluverkefni fram yfir lífsnauðsynlega þjónustu.

Það voru ritstjórarnir Ragnheiður Eiríksdóttir af Pressunni, Bleikt og DV og Steingerður Steinarsdóttir af Vikunni sem voru gestir Sigmundar Ernis að þessu sinni og sköpuðu líflega og málefnalega umræðu.

Ritstjórarnir eru endursýndir í dag, en frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.