„er kleppi ævinlega þakklát“

Landlæknir segir vanrækslu hafa orðið til þess að hraust, rúmlega þrítug kona, Erla Kolbrún Óskarsdóttir, leið óbærilegar kvalir í sex ár eftir aðgerð sem hún þurfti að fara í eftir að hafa eignast yngri dóttur sína. Það er nokkuð algengt að konur fái þá endaþarmssig eftir fæðingu barna og þá þarf að gera fremur einfalda aðgerð. Erla Kolbrún varð hins vegar fyrir óafturkræfum taugaskemmdum fyrir sex árum og leið vítiskvalir þangað til fyrir stuttu. Sérfræðingur á Landspítalanum sem tók við Erlu Kolbrúnu sagði læknamistök hafa valdið þessum skemmdum, en aðgerðin var gerð af lækni sem nú er hættur störfum, á sjúkrahúsinu á Akranesi. 

Erla Kolbrún er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hún ræðir þessi afdrifaríku læknamistök.

Henni voru dæmdar hæstu sjúklingabætur sem hægt er að fá en engin lausn var í boði í íslensku heilbrigðiskerfi – stofnfrumumeðferð sem hún sótti nú nýlega í Bandaríkjunum er bara opin krabbameinsjúklingum hér á landi. Hún var því að jafnaði lögð inn vikulega með verki og ekkert annað í boði en morfín og svefnlyf þar sem nauðsynleg hvíld gaf henni stutt tímabil inn á milli án mikilla verkja.

Erla Kolbrún og fjölskylda hennar greiddu tæplega tvær milljónir fyrir ferðina og aðgerðina ytra, en eiginmaður hennar og dæturnar tvær fóru með.

Aðgerðin gekk vel en Erla Kolbrún er ekki verkjalaus. Lífið er þó allt annað. Áður gat hún ekkert gert, löngu óvinnufær og gat ekki hengt upp þvott eða hjálpað neitt heima, allt lenti á eiginmanni hennar. Núna getur hún gert margt og mikið heima við og tekið þátt í lífi dætra sinna.

Erla Kolbrún mun líklega þurfa að fara í aðra sams konar aðgerð í Bandaríkjunum, en það verður ekki strax vegna mikils kostnaðar. „Læknirinn er duglegur að heyra í mér, en hann sagði það frá upphafi að ég yrði líklegast að fara í tvær meðferðir ef ég ætlaði að fá varanlegan bata, en eins og staðan er í dag þá gengur það ekkert, að ég fari strax aftur, því að þessi meðferð er mjög dýr.“

Hún var einnig gestur Lindu Blöndal í 21 í september í fyrra og hugðist þá leita sér hjálpar í Bandaríkjunum og var að safna fyrir því. Þá sagði Erla Kolbrún okkur frá sjálfsvígstilraun og því hvernig hún vegna kvalanna þráði ekkert heitar en að fá bara að sofna svefninum langa. Hún er mjög þakklát Kleppi þangað sem hún var lögð inn síðastliðið sumar, því þar fékk hún þá andlegu hjálp sem þurfti svo hún gæti haldið í vonina um að fá líf sitt til baka.

Rætt er við Erlu Kolbrúnu í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.