Ná skagfirðingar völdum í högum?

Fram hefur komið í fréttum að ókunnur fjárfestir hafi keypt 3% í Högum í síðustu viku fyrir 1.5 milljarða króna.

Orðrómur er um það á markaðnum að kaupandinn sé Kaupfélag Skagfirðinga en viðskiptin fóru fram gegnum Arion banka sem er viðskiptabanki kaupfélagsins.

Þá eru óstaðfestar fréttir um að yfirtaka Haga á Olís sé senn að klárast með samkomulagi við Samkeppniseftirlitið. Við það eignast kaupfélagið talsverðan hlut í Högum sem helmingseigandi Olís.

Á næstu dögum skýrist hvort þessi orðrómur á við rök að styðjast.