Færsla á facebook sem Jón Gnarr skrifar í gær er af mörgum talin fyrirheit um að hann hyggist tilkynna það á morgun að hann fari fram til forseta Íslands.
Áður hefur borgarstjórinn fyrrverandi, listamaðurinn og núverandi yfirmaður hjá 365 slegið úr og í en í viðtali við Kjarnann í vikunni sagðist hann tilkynna ákvörðun sína á morgun.
„Ég hef verið að hugsa mikið um gildi okkar sem þjóðar. Þó ég telji mig trúlausan þá get ég ekki hafnað því að kristin trú hefur verið mikilvægur hluti af þjóðmenningu okkar og sögu. Þjóðfáninn okkar er td. krosstákn. Lykillinn að framtíð okkar felst í því að við náum sem best að samrýma ólík viðhorf og lífsskoðanir, útrýma ágreiningi en vinna saman sem heild. Sagan kennir okkur að þannig hefur okkur yfirleitt gengið best að ná árangri,“ skrifaði Jón Gnarr á eigin fésbókarvegg áðan.
Samherjar Jóns hafa í athugasemdum fagnað þessari meldingu og túlkað hana sem svo að ferðalagið sé hafið þar sem Bessastaðir séu meintur áfangastaður.
Má rifja upp að þegar Ólafur Ragnar Grímsson tók ákvörðun um að bjóða sig fram til forseta fór að bera á meiri mildi í kosningabaráttunni hjá honum gagnvart trú og kirkjunni, enda stærstur skoðanastabbi landsmanna í þjóðkirkjunni þá sem nú, þótt nokkuð hafi kvarnast úr.