Er íslensk spilling öðruvísi en önnur?

Er eðlismunur á spillingu milli þróunarlanda og lýðræðisríkja? Þessari spurningu verður svarað í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi á Hringbraut í kvöld þar sem Sólveig Ólafsdóttir fær til sín góða gesti.


Þær Helen María Ólafsdótti, ráðgjafi hjá Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir lektor í stjórnsýslufræðum og stjórnarmaður í Gagnsæi, samtökum gegn spillingu eru gestir Sólveigar í þættinum í kvöld.  Þar ræða þær ýmsar birtingarmyndir spillingar, og hvort það sé stigsmunur eða eðlismunur á spillingu í þróunarlöndum eða lýðræðisríkjum.

 

Helen hefur starfað sérstaklega við umbætur í öryggismálum og þjóðaröryggi síðustu ár í ríkjum á borð við Sómalíu, Súdan, Suður-Súdan og Líbíu.  Hún segir spillingu viðvarandi í þessum ríkjum og augljósa, en oft megi koma í veg fyrir að þeir sem völdin hafa beiti sér í krafti þeirra með því að setja upp ferla og kerfi sem erfitt sé að fara á svig við.  Hún segir að slíka ferla sárvanti víða í stjórnsýslu á Íslandi.

 

Í þættinum í kvöld er meðal annars rætt um líkindin milli nýlegra vopnakaupa stjórnvalda á Íslandi og Sómalíu, en enda þótt Ísledndingar telji sig vafalítið vera með betra stjórnarfar en tíðkast í austur Afríkuríkinu virðast ferlarnir hafa verið þeir sömu í báðum tilvikum vopnakaupanna. 

 

Þáttur Sólveigar er frumsýndur klukkan 20.45 í kvöld og klippur úr þætti kvöldsins er hægt að horfa á með því að smella hér.