Er illugi á leið úr ríkisstjórninni?


Illugi Gunnarsson er væntanlega á sömu leið og Hanna Birna, þ.e. út úr ríkisstjórninni, eftir dæmalaust klúður varðandi hagsmunatengsl sín við Orku Energy.




Þessu heldur Ólafur Jón Sívertsen fram í pistli hér á hringbraut.is. Hann telur að þrátt fyrir vináttu við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, verði brottför hans úr ríkisstjórninni tæpast umflúin.




Orðrétt segir Ólafur: “Staða flokksins er hins vegar svo garfalvarleg að Bjarni á engar pólitískar innstæður til að skjóta skildi fyrir Illuga í þeim miklu klúðursmálum sem hann hefur komið sér í og hafa orðið opinber að undanförnu. Illugi er rúinn trausti meðal fjölmiðlamanna sem hann hefur reynt að afvegaleiða og trúlega einnig meðal þorra kjósenda………”




Í pistli sínum gerir Ólafur því skóna að Bjarni gæti notað tækifærið og losað sig einnig við Ragnheiði Elínu Árnadóttur sem hefur komið sér í mikið klandur með ferðamannapassanum sem enginn vill. Þá gætu ráðherrahrókeringar farið fram t.d. þannig að Ólöf Nordal tæki við menntamálaráðuneytinu, Unnur Brá við innanríkisráðuneytinu og Jón Gunnarsson iðnaðarráðuneytinu.