Er í nánu sambandi við sigmund davíð

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, var aðalgestur Þjóðbrautarþáttar á sunnudaginn.

Hann sagðist þar meðal annars vera í nánu sambandi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formanns Framsóknarflokksins, vegna þeirrar sérstöku stöðu sem er uppi, þar sem varaformaðurinn er forsætisráðherra og formaður flokksins er utan ríkisstjórnar.

Sigurður Ingi segir ekki rétt að Sigmundur sé aftursætisbílstjóri.

Sigurður Ingi metur sem svo að Framsóknarflokknum hafi tekist að uppfylla öll gefin kosningaloforð og metur það svo að flokkurinn hljóti að bæta við sig fylgi fyrir kosningar.