Er höfundur stellu blómkvist kannski karl?

Í Bókahorninu á Hringbraut í kvöld verður farið yfir metsölulista Pennans Eymundssonar þessa dagana, fjallað um Stellu Blómkvist (er hún kannski karl?) og nýjustu bók þessa leynihöfundar til 22ja ára. Auk þess verður fjallað um lífsstílsbækur, makamissi, hormónajóga og breytingaskeið kvenna, en nú er einmitt tími slíkra bóka.

\"\"

Margrét Jóna Guðbergsdóttir vörustjóri hjá Pennanum Eymundsson fer yfir metsölulistann.

\"\"

Sigríður Ásta Árnadóttir, ritstjóri Forlagsins, ræðir um Morðið í Snorralaug, nýjustu bókina um Stellu Blómkvist.

\"\"

Halla Kjartansdóttir þýðandi ræðir Vonum það besta eftir Carolinu Setterwall.

\"\"

Rakel Fleckenstein Björnsdóttir þýðandi ræðir Hormónajóga – leið til að endurvekja hormónabúskap þinn, eftir Dinuh Rodrigues. Ásamt því að vera þýðandi er Rakel hormónajóga- og hathajógakennari.

Bókahornið hefst klukkan 20:00.

Hægt er að horfa á alla fyrri þætti Bókahornsins hér.