Formenn Viðreisnar og Bjartrar Framtíðar hafa gengið í eina sæng. Benedikt Jóhannesson, Viðreisn og Óttarr Proppé, Bjartri framtíð fóru saman á fund Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í ráðherrabústaðnum eftir að Bjarni fékk stjórnarmyndunarumboðið frá Forseta Íslands í gær.
Freistandi er að hugsa til þess að Heiða Kristín Helgadóttir hafi verið tengingin á milli Óttarrs og Benedikts. Heiða er enn í ráðgjafahópi Óttarrs og gekk nokkru fyrir kosningar til liðs við Viðreisn. Heiða var einn af forsprökkum við stofnun Besta flokksins í borginni undir stjórn Jóns Gnarr.