Össur Skarphéðinsson alþingismaður er einn fjölmargra landsmanna sem hafa fagnað verðlkkun IKEA frá því í gærdag, en kveðst jafnframt hugsi um aðgerðarleysi annarra verslana í landinu.
Hann segir verðlækkun stórverslunarinnar í Garðabæ á samtals 9000 vörutegundum spara landsmönnum 200 milljónir króna, en forstjórinn hafi brillerað í fréttunum þegar hann skýrði ástæður lækkunarinnar; hann hafi í raun og sann sagt þar að hagnaður verslunarinnar í landinu væri of mikill: \"Krónan hefði styrkst gagnvart evrunni, fjölgun ferðamanna bætt afkomu verslunar á Íslandi og sömuleiðis hefðu kjarasamningar verið svo hagstæðir,\" skrifar Össur á fésbók sína og bætir við: \"Altsvo, gengu ekki Seðlabankinn og ríkisstjórnin um einsog grenjandi ljón og spáðu verðbólguvetri í kjölfar kjarasamninganna? Sama gildir auðvitað um önnur fyrirtæki sem selja innflutning. Af hverju lækka þau ekki sín verð? Ætla þau að haga sér einsog olíufyrirtækin sem FÍB segir að steli af okkur hálfum milljarði í ár með því að skila ekki lækkunum á olíuverði,\" spyr Össur og beinir næstu spurn sinni til ráðherra: \"Hvenær ætlar Ragnheiður Elín, ráðherra neytendamála, að taka slaginn fyrir neytendur?\"
Rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson er á sömu nótum og Össur í tilskrifi sínu á fésbókinni: \"Ókei, þetta er soldið labb og getur farið í bakið, en ekki meira en meðal-safn í útlöndum. Og nú hefur IKEA á Íslandi gert öllum hinum – og þá Högum alveg sérstaklega – skömm til, með því að lækka hjá sér verð vegna þess að allar ytri aðstæður bjóða upp á verðlækkun, í stað þess að stinga á sig arðinum og kaupa sér nýtt hús í London og geyma restina á Tortóla eins og aðrir kaupmenn gera;\" skrifar Andri og segir það hafa verið tísku hjá menntamönnum að tala illa um IKEA og emja um hversu leiðinlegt þar sé að versla: \"…skemmst er að minnast sögu eftir vel metinn höfund þar sem því er lýst átakanlega hvílík inferno-ferð það hafi verið söguhetjunni að fara þangað í verslunarleiðangur. Ég hef aldri lifað mig inn í þetta. Í fyrsta lagi finnst mér gaman að fylgjast með fólki þarna inni því að það er að máta sig við einhverja tilveru – þetta er íslenska ástarbrautin, þarna eru ung hjón að hefja búskap og velja sófa, ljós, hnífapör, bókaskápa… hvernig getur það verið leiðinlegt? Í öðru lagi hef ég alltaf verið hrifinn af hinni sósíaldemókratísku hugsun á bak við IKEA; að gera almenningi kleift að eignast fallegan og vel hannaðan varning á lágu verði; falleg hönnun sé ekki bara frátekin fyrir þá ríku,\" skrifar rithöfundurinn á fésbók sína.