Þó Guðni Th Jóhannesson forseti hafi verið brosandi um áramótin og virst afslappaður, er honum vissulega tekið að leiðast þófið varðandi tilraunir til stjórnarmyndunar.
Hann mun hafa gert formönnum flokkanna það ljóst að nú vilji hann fara að sjá til lands með myndun ríkisstjórnar. Hann hefur látið að því liggja að hann sé tilbúinn með drög að utanþingsstjórn sem verði skipuð innan skamms ef honum verði ekki sýnt fram á að alvörustjórn sé á næsta leiti. Hann er sagður vilja sjá niðurstöðu innan fárra daga annars grípi hann til sinna ráða.
Í boði forseta á nýjársdag ræddu boðsgestir m. a. um mögulega utanþingsstjórn. Bent var á að forsetinn hefði fjölmarga möguleika á að skipa reynda stjórnmálamenn í slíka stjórn ásamt öðru öflugu fólki.
Meðal þeirra sem helst voru nefndir eru þessir: Ólafur Ragnar Grímsson sem gæti orðið forsætisráðherra utanþingsstjórnar og Már Guðmundsson fjármálaráðherra. Aðrir sem oft var bent á eru Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Ragna Árnadóttir, Ingibjörg Sólrún, Einar Kristinn Guðfinnsson, Össur Skarphéðinsson, Halla Tómasdóttir og Ögmundur Jónasson. Einhverjir bentu á að heppilegt væri að bjóða fulltrúum vinnumarkaðarins sæti í utanþingsstjórn, þeim Björgólfi frá SA og Gylfa forseta ASÍ.
Erfitt gæti orðið að koma svona öflugri ríkisstjórn frá völdum.
Hugar forseti að utanþingsstjórn?
Fleiri fréttir
Nýjast