Er fjölmiðlabann betra?

Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari bað deiluaðila um að ræða ekki við fjölmiðla héðan í frá. Á meðan deilan er óleyst sé best að enginn tjái sig í fjölmiðlum.

Það má hafa fullan skilning á þessu. Hins vegar hafa umræður um deiluna hingað til á Hringbraut, orðið til þess að fleiri skilji hvað um er deilt.

Skýrsla Sjávarklasans sýnir að deilan snertir ótalmörg störf. Allt frá fiskvinnslustörfum og sjómennsku til afleiddra starfa sem snúa oft að útflutningi. Þar er metið að tapið getið verið allt að 1300 milljónir á dag. Vonandi finnur allt það fólk sem vinnur í geiranum leið til að fá að vita hvað er að gerast.

Í umræðum á Hringbraut kom í ljós að deilan á sér djúpar rætur. Það er vantraust og tortryggni sjómanna gagnvart útgerðum. Þeim útgerðum sem hafa útgerð og vinnslu á sömu hendi. Sjómenn segja útgerðina í þeim flokki selja sér aflann á lægra verði en eðlilegt er og lækka þar með laun sjómanna.

Þetta eru mikilvægar upplýsingar sem komu fram í Þjóðbrautarþætti Hringbrautar fyrir skömmu.