\"Staðan er þessi: Formaður Sjálfstæðisflokksins var gerður afturreka með þann boðskap í setningarræðu sinni að ríghalda í krónuna hvað sem það kostar,\" skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is, en þar hafi krónan verið stærsta viðfangsefni fundarins.
Hann minnir þó á að tillaga ungra sjálfstæðismanna um nýja mynt sem gjaldgeng væri í milliríkjaviðskiptum hafi heldur ekki náð fram að ganga; menn hafi sæst á eins konar niðurstöðuleysi með ályktun um að kanna hlutina: \"Það heldur dyrum allavega opnum og er ánægjulegt fyrir marga.\"
Hitt veki athygli, bendir Þorsteinn á: \"...úrræði forsætisráðherra ganga svo þvert á sjónarmið beggja skoðanahópa í Sjálfstæðisflokknum.\" Sumsé, hugmyndir formannsins um að reyna enn að gera krónuna samkeppnishæfa hafi ekki náð fram að ganga.
Niðurstaðan af öllu sé augljós: \"Stjórnarflokkarnir gáfu báðir fyrirheit um að ný stjórnarstefna þeirra myndi sjálfkrafa gera krónuna samkeppnishæfa. Þegar aðeins eitt og hálft ár er til kosninga liggur fyrir að ríkisstjórnin hefur steytt á skeri með þetta fyrirheit.\"
Þorsteinn spyr hvort erindi ríkisstjórnarinnar sé einfaldlega lokið, þar innandyra viðri menn hugmyndir um ráðherraskipti þótt þeir hinir sömu dásami verk allra ráðherra - og til hvers þá að boða ráðherraskipti nema til annars en að dreifa athyglinni frá þeirri staðreynd að ríkisstjórnin er einfaldlega í bóndabeygju í gjaldmiðilsmálinu: \"Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki fastmótaða stefnu enn sem komið er. Hann getur hins vegar aldrei fallist á að nota hugmynd Framsóknar um ríkisvæðingu bankanna til að greiða niður vexti og skera niður velferðarkerfið,\" skrifar Þorsteinn.
\"Að öllu virtu blasir þetta við,\" skrifar hann í lokin: \"Stjórnarflokkarnir geta hvor um sig átt erindi við kjósendur. En ríkisstjórn í þessari stöðu hlýtur að spyrja sig þeirrar spurningar hvert erindi hennar er. Kannski er því bara lokið.\"