„Ég vann í tíu ár á einum af leikskólum borgarinnar. Ég elskaði vinnuna mína en ég upplifði það sem persónulega móðgun í hvert skipti sem ég fékk litlu launin fyrir mína miklu unnu vinnu. Ég gat aldrei skilið verðmætamatið sem stýrði för í ákvarðanatöku yfirvalda í borginni; endalausir fjármunir til að útdeila hingað og þangað en aldrei nóg til að tryggja góða og mannsæmandi afkomu þeirra sem vinna við \"undirstöðuatvinnugreinina\" sem vinna í íslenskum leikskóla sannarlega er.“
Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. Í pistli á Facebook gagnrýnir hún harðlega að Reykjavíkurborg hafi greitt rúman milljarð króna fyrir birtingu á auglýsingum á árunum 2010 til 2019. Það var Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins sem kallaði eftir þessum upplýsingum. Sólveig heldur áfram:
„Vinkona mín hefur starfað í leikskóla reknum af borginni í 23 ár, frábær manneskja og frábær samstarfskona, elskuð af börnum og foreldrum. Hún fær í laun 348.566 krónur og eftir að hún hefur greitt skatta og gjöld standa eftir umþb. 280.000 krónur,“ segir Sólveig og bætir við: „Eftir 23 ár í þjónustu borgarinnar, við að annast börnin okkar. Á sama tíma er hægt að auglýsa (hvað í ósköpunum þarf borgin að auglýsa svona mikið?) fyrir milljarð.“
Sólveig undrast verðmætamatið og spyr: „Er ekki nóg komið? Getum við ekki sameinast um að samfélagsleg „gildi“ okkar séu þau að góð afkoma þeirra sem gæta barna sé mjög mikilvæg, mikilvægari en vinsældarkeppni borgaryfirvalda og óseðjandi löngun þeirra í að hlotnast viðurkenning fyrir að vera skemmtileg?“
Þá segir Sólveig að lokum: „Vegna þess að þótt að það sé gaman að hafa gaman er samt skemmtilegra að öllum líði vel og að öll séu metin að verðleikum. Ef við tryggjum það erum við komin miklu lengra í að útbúa skemmtilegt samfélag en með nokkrum öðrum aðferðum.
Ég vona að þau sem búa með okkur í þessari borg styðji kröfur okkar, í ljósi þess að það er einfaldlega til skammar að sætta sig við áframhaldandi ástand.“