Er ekki með óflekkað mannorð

Vissulega er það áhyggjuefni að Alexei Navalny á þess ekki kost að bjóða sig fram til forseta Rússlands árið 2018. En hugur hans stendur til þess embættis.

Í Rússlandi - réttt eins og hér á landi - telst enginn hafa óflekkað mannorð sem er sekur eftir dóm. Dóm fyrir verk sem er svívirðilegt lögum samkævmt. Nema hann hafi fengið uppreist æru.

Alexei Navalny gengst við því að vera dæmdur glæpamaður en staðhæfir við fjölmiðla að hann hafi verið hafður fyrir rangri sök.

Nú leggur hann til atlögu og hvetur rússneska kjósendur til að sitja heima á kjördag.  

 

[email protected]