„er ekki að svíkja neinn“

Theodóra S. Þorsteindóttir hættir á Alþingi um áramót og hefur því einungis setið í eitt ár á þingi. Theódóra var kjörin á þing fyrir Bjarta framtíð en hún er ennfremur forseti bæjarstjórnar í Kópavogi. Hún neitar því að vinnuálagið sé ástæða uppsagnar sinnar á starfi sínum sem þingmaður. Hún hafi aftur á móti ekki löngun til að vera áfram á þingi þar sem einstaka þingmaður ræður litlu og fá mál þeirra ef einhver fái framgang. Hún segir á Þjóðbraut að þegar hún bauð sig fram til þings hafi fylgi flokksins verið svo lítið að hún hafi ekki búist við kjörinu. 

„Kjósendur mínir í Kópavogi eru ekki minna mikilvægir en kjósendur mínir í kjördæminu“, var svar Theódóru þegar hún var innt eftir því hvort að hún teldi sig ekki svíkja kjósendur sína með afsögninni.