„það þarf ekkert að tefla mér fram“

Heiðveig María Einarsdóttir sjómaður og viðskiptalögfræðingur var í fyrradag rekin úr Sjómannafélagi Íslands og mætir til Lindu Blöndal í þáttinn 21 í kvöld.

 Heiðveig hafði lýst yfir framboði til formennsku í félaginu í haust en komst að raun um að erfitt var að fá gögn hjá félaginu afhent t.d. þegar hún vildi kynna sér lög félagsins og athuga með kjörgengi sitt. Einnig var lögum félagsins breytt þannig að hún var ekki viss um að hún gæti boðið sig fram.

 Heiðveig hefur verið aktívur talsmaður sjómanna í kjarabaráttu þeirra en var rekin eftir samþykkt trúnaðarmannaráðs eftir kröfu fjögurra fulltrúa í ráðinu.

Meðal þess sem sagt var brottrekstrarsök var að Heiðveig hefði talað illa um félagið og stjórn þess og orðið þess valdandi að sameingin sjómannafélaga rann út í sandinn. Heiðveig er talin bera ábyrgð á því að 25 ára draumur um sameiningu varð að engu, eins og formaður félagsins Jónas Garðarsson hefur látið hafa eftir sér.

Einnig hafa verið uppi kenningar um að Heiðveig sé handbendi Sósíalistaflokksins og stofnanda hans Gunnars Smára Egilssonar sem vilji taka yfir verklýðsfélag sjómanna núna – fyrst Efling og svo sjómannafélagið. Heiðveig segist ekki vita hvaðan slíkt komi, hún hafi aldrei verið tengd flokknum og sé fullkomlega á eigin vegum.

Hvað varðar slit á sameiningaviðræðum félaga segir Heiðveig að hún hafi einfaldlega bent á brotalamir í stjórn félagsins og önnur félög hafi þá farið að óska eftir gögnum líka sem þau fengu ekki, ekki frekar en Heiðveig að hennar sögn. Hún býst við að brottreksturinn verði kærður fyrir Félagsdómi og langt í frá að hún sé hætt að benda á brotalamir í stjórn síns fyrrverandi félags. Margir félagsmenn hafi komið að máli við sig og stutt sig og hafi áhyggjur af því að félagið sé illa rekið.