Er bannað að fróa sér á almannafæri?

Er ekki bannað að fróa sér á almannafæri eða má maður það ef það er í nafni listarinnar?

Svo spyr Þráinn Bertelsson rithöfundur á fésbók.

Þar fer hann í færslu sinni nokkrum orðum um Almar sem hann kallar, drenginn í kassanum og spyr m.a. þessarar áleitnu spurningar.

„Ég skal fyrstur manna viðurkenna vanþroska minn varðandi listir almennt og get ekki með neinu móti skilið tilganginn eða menninguna með þessum gjörningi en það er auðvitað bara mitt álit og meining,“ segir Þráinn m.a.