Er alþingi ekki atvinnulífið?

Að óbreyttu verða fjórir karlar í efstu sætum í stærsta kjördæminu, Kraganum hjá Sjálfstæðismönnum, Í öðru stóru, Suður kjördæmi, urðu þrír karlar efstir.

Þessi skipan rímar illa við það sem Alþingi samþykkti í mars 2010 í frumvarpi um stjórnir fyrirækja. Þá var lögum breytt um að kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga og einkahlutafélaga mættu ekki vera undi 40 prósent fyrir hvort kyn. Lögin tóku gildi 2013. Tugir landa, allt frá Evrópuríkjum til Nýja Sjálands og Ísrael, hafa tekið upp slíka kvóta með einum eða öðrum hætti.

Frumvarpið um kvóta í stjórnir var samþykkt með atkvæðum 32 þingmanna úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki. Ellefu greiddu ekki atkvæði. 

Núna hefur konum fjölgað í stjórnum. Hæfum konum. Og margar þeirra eru í Sjálfstæðisflokknum. Hvar eru þær þá?

Svo má halda því til haga að sjálfsögðu að líklegar til að ná kjöri séu 6 þingkonur Sjálfstæðisflokks líkt og síðar. Sex konur á móti 13 körlum.