Í fréttatilkynningu frá Granda eftir aðalfund sl. föstudag kom fram að kjölfestufjárfestar í félaginu réðu yfir meira en 40% hlutafjár í Granda undir forystu Kristjáns Loftssonar.
Þessi yfirlýsing hefur valdið því að ýmsir velta því fyrir sér hvort skapast hafi yfirtökuskylda kjölfestufjárfestanna á öllu hlutafé í Granda. Ef svo væri þá þyrftu þeir að bjóðast til að kaupa allt hlutafé af öllum öðrum hluthöfum.
Miðað við markaðvirði Granda, sem er um 70 milljarðar króna, gætu Kristján Loftsson og viðskiptafélagar hans þurft að standa undir kaupum á hlutafé í félaginu fyrir 35 til 40 milljarða króna.
Heimildarmenn Hringbrautar, sérfræðingar í viðskiptum, segja að Kauphöll Íslands og Fjármálaeftirltið muni e.t.v. meta það næstu daga hvort yfirtökuskylda hefur skapast með þessari yfrlýsingu forystumanna Granda.
Íslenskir lífeyrissjóðir eiga nú 35% alls hlutafjár í Granda og hafa sýnt því áhuga að hafa áhrif á val einhverra stjórnarmanna en Kristján Loftsson hefur tekið því mjög illa og telur eðlilegt að kjölfestufjárfestirinn ráði öllum stjórnarmönnunum. Með því að öll gamla stjórnin dró framboð sín til baka á föstudag er ljóst að allir 5 stjórnarmennirnir líta þannig á að þeir séu þar á vegum kjölfestufjárfestirsins og lúti vilja hans. Það hefur vakið talsverða athygli.
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands segir að átökin í VÍS og Granda séu jákvæð merki um að lífeyrissjóðirnir séu að gæta hagsmuna sinna og almennings. Í viðtali við visi.is segir hann m.a.: “Lífeyrissjóðirnir eru að gæta sinna hagsmuna á hlutabréfamarkaði með virkari hætti en áður. Það er að mínu viti jákvætt merki. Þeir auðvitað fara með fé almennings og bera ríka skyldu að vera virkir í gæslu þess fjár sem þeir fara með.\"