Námskeið á 360 þúsund

Maður sem tók fjaráfanga í ensku við framhaldsskóla um leið og hann þáði atvinnuleysisbætur er gert að endurgreiða þær ásamt vöxtum.

Maðurinn á að endurgreiða rúmlega 360 þúsund krónur þar sem hann þáði atvinnuleysisbætur samhliða fjarnámi í einum áfanga í framhaldsskóla. Að auki verður hann að greiða 15 prósenta álag á upphæðina. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar í velferðarmálum (ÚRV) en frétt um þetta birtist í Fréttablaðinu.  Þar segir að maðurinn hafi lokið háskólanámi í fyrravor og fengið sumarstarf. Eftir það fór hann á atvinnuleysisbætur.

Úrskurðurinn var á þá leið að hefði maðurinn frekar tekið allt að 10 ETCS einingar í háskóla þá hefði það ekki haft áhrif á bótaréttin. Í lögum sé ekki heimild fyrir neinu námi í framhaldsskóla meðfram bótum, segir í fréttinni og menn teljist þá stunda nám í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.  

Lögin virðast því ekki gera ráð fyrir því að fólk leiti sér þekkingar í framhaldsskóla meðfram bótum, heldur einungis í háskóla.

Í nóvember barst manninum bréf frá Vinnumálastofnun um að fella ætti niður bótarétt hans og krefja hann um endurgreiðslu ofgreiddra bóta vegna enskuáfangans.