Allt er nú vitlaust í breskum fjölmiðlum eftir að Daily Star sagði frá því að Íslendingar fengju 8000 fleiri miða en stórþjóðin England á leiki lokakeppni EM næsta sumar í Frakklandi.
BBC og Sky News hafa einnig tekið málið upp og er talað um hneyksli.
Hermt er að KSÍ fái 30.000 miða sem jafngildi því að einn af hverjum 10 Íslendingum fái miða en enska hlutfallið sé 1:2.254.
Það er DV sem sagði fyrst íslenskra miðla frá þessu og segir skýringuna þá að Ísland muni spila á mun stærri leikvöllum en England.