Enn verið að byggja of mörg stór hús

Bárður H. Tryggvason og Ingólfur Gissurarson hjá Valhöll fasteignasölu, segja að enn sé verið að byggja of mikið af stórum húsum. Eftirspurnin sé hins vegar eftir smærri eignum og í þessum efnum væri mikilvægt að sveitarfélögin kæmu að borði. Bárður sagðist ekki vita hvort sveitarfélögin væru almennt að hitta byggingaverktaka en þess þyrfti helst. Þá sagði Ingólfur að sveitarfélög ættu að horfa á það sem tækifæri fyrir sig ef meiri áhersla væri lögð á hverfi með smærri eignum, því það myndi lokka til sín fjölmennan kaupendahóp.

Þetta var meðal þess sem kom fram í þættinum Heimilið, sem nú hefur tekið við af þættinum Afsal á Hringbraut. Þáttastjórnandi er Sigmundur Ernir Rúnarsson en þátturinn verður endursýndur í allan dag og aftur um helgina. Í næstu viku verður þátturinn sýndur á föstudagskvöldum klukkan 20.00.