Enn verður mótmælt á austurvelli

Nú þegar beðið er tíðinda af þingflokksfundum hafa mótmælendur skipulagt enn einn viðburðinn á Austurvelli klukkan 17 í dag.

Um þúsund manns hafa boðað komu sína en 2000 hafa sýnt áhuga á að mæta skv. facebooksíðu mótmælenda.

Krafan er sem fyrr að boðað verði til kosninga strax.

Engir þingfundir fara fram á Alþingi í dag og er staða mála næstu daga ekki alveg skýr, enda gengur mikið á bak við tjöldin, bæði í hópi meirihlutans og minnihlutans.

Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr forsætisráðherra, hefur samkvæmt viðtali sem Morgunblaðið birtir við hann í dag skipt um skoðun frá því að hann taldi ekkert því til fyrirstöðu að efnaðir Íslendingar geymdu fé í lágskattaríkjum utan landsteinanna fyrir helgi eins og fram kom í umræðum á Alþingi.