Það verður ekkert rennifæri á mörgum á þjóðvegum landsins í aðdraganda einnar mestu ferðahelgi ársins, en búast má við því að umferð á öllum meginleiðum þyngist á morgun, fyrsta apríl og nái hámarki daginn eftir, á Skírdag. Snjóruðningstæki Vegagerðarinnar verða á þönum næstu daga, enda verkefnin næg og viðvarandi; snjókoma og éljagangur eru í kortunum um meginhluta Norðurlands og allt austur á land. Þungfært er um Tjörnes og þæfingsfærð á Vopnafjarðarheiði svo dæmi sé tekið, en einnig er töluverð snjóþekja á Fjarðarheiði og Fagradal. Um sunnan- og vestanvert landið gætir enn töluverðrar hálku og sumstaðar er jafnvel þæfingur.
Veður fer hlýnandi frá föstudeginum langa og má búast við að sunnanáttirnar um sjálfa páskahelgina færi yfir landið allt að sjö stiga hita en þó gæti kólnað lítillega aftur undir kvöld á páskadag. Umhleypingar verða svo meira og minna alla vikuna eftir páska.