Fanney Birna Jónsdóttir verður nýr aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins og Andri Ólafsson, sem verið hefur fréttastjóri á Fréttablaðinu undanfarin misseri, mun verða nýr ritstjóri Íslands í dag.
Andri tekur við þeirri stöðu af Sindra Sindrasyni, sem mun áfram starfa hjá 365 við fréttalestur og dagskrárgerð. Þá taka Ólöf Skaftadóttir og Viktoría Hermannsdóttir við sem ritstjórar helgarblaðs Fréttablaðsins af Erlu Björg Gunnarsdóttir sem mun sinna almennum fréttaskrifum. Kristín Þorsteinsdóttir verður áfram ritstjóri Fréttablaðsins. Frá þessum skipulagsbreytingum innan 365 miðla, stærsta einkarekna fjölmiðlafyrirtækis landsins, er greint á Eyjunni.
Kjarninn greindi nýverið frá því að Ísland í dag yrði stokkað upp í annað sinn á skömmum tíma. Í byrjun apríl síðastliðins var tilkynnt um miklar breytingar á þættinum. Í þeim fólst meðal annars að þættirnir yrðu að að jafnaði lengri en áður, eða um 40 mínútur að lengd, og þeir gerðir í meiri samvinnu við fréttastofu 365. Auk þess yrðu sérstakir þættir um stjórnmál, efnahagsmál og viðskiptalíf undir hatti Íslands í dag. Þannig átti þátturinn alltaf að fjalla um málefni líðandi stundar og tengjast betur þjóðmálaumræðunni en hann hafði gert undanfarin ár.
Áhorf á hið nýja Ísland í dag hefur ekki staðið undir væntingum. Í lok febrúar var meðaláhorf á þáttinn yfir 16 prósent og viku áður en breytingar á honum voru innleiddar horfðu 14,1 prósent á hann.