Enn skelfur jörð á Reykjanesi: Annar skjálfti 5,0 að stærð

Jarðskjálftahrinan sem hófst á Reykjanesi þann 24. febrúar síðastliðinn heldur áfram en skömmu eftir klukkan hálf tvö í dag varð skjálfti af stærðinni 5,0 í sunnanverðu Fagradalsfjalli.

Að sögn náttúruvásérfræðinga hjá Veðurstofu Íslands fannst skjálftinn vel á suðvesturhorni landsins en þetta er stærsti skjálftinn sem mælst hefur á svæðinu í rúma tvo sólarhringa, þegar skjálfti af stærðinni 5,0 mældist.

Frá miðnætti hafa rúmlega 1400 jarðskjálftar mælst á svæðinu en sá stærsti fyrir skjálftann í hádeginu varð á fimmta tímanum í nótt og var 4,2 að stærð.

Enginn merki eru um gosóróa í kjölfar skjálftans en á meðan virknin heldur áfram er gert ráð fyrir því að gos geti brotist út.