Báðir forsetaframbjóðendurnir Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir telja allt of snemmt út frá nýjustu skoðanakönnunum að segja til um hvernig úrslit forsetakosninganna 25.júní verði.
Enn óvíst um frambjóðendur
\"Í fyrsta lagi þá er framboðsfresturinn ekki runninn út svo við vitum ekki hverjir verða endilega í framboði. Eins og við höfum séð að undanförnu þá hafa mikla sviptingar verið\", segir Halla í viðali sem Linda Blöndal tók við hana á Hringbraut og verður þar á dagskrá klukkan 21 í kvöld.
Barátta í stærra samhengi
Andri Snær sagði sömuleiðis að nýjustu kannanir væru núna ekki til þess fallnar að segja til um hver hlyti á endanum kjör. Sömuleiðis sæi hann sín helstu baráttumál, umhverfismál og læsi barna í mun stærra samhengi en rúmist innan hefðbundinna stjórnmála.
Ekki dreymt Davíð
Aðspurður hvort hann hefði dreymt Davíð Oddsson eitthvað nýlega sagðist Andri Snær ekki muna eftir því en kátínu vakti þegar Andri Snær sagði frá því að hann hefði dreymt sjálfan sig með honum. „Mig dreymdi þetta einmitt um daginn. Þar sem ég var með bláa geislasverðið mitt og Davíð Oddsson sagði: I am your father.“, sagði hann við blaðamann Vísis. Stuttu síðar bauð Davíð sig fram. Í draumalandi Andra Snæs var því ekki að finna neinar vísbendingar um næstu sviptingar í forsetakosningunum.
Viðtölin við Andra Snæ og Höllu er eins og fyrr segir á dagskrá Hringbrautar kl.21 í kvöld.